Óska eftir aðstoð við sýnatökur

Röð í sýnatöku við Suðurlandsbraut.
Röð í sýnatöku við Suðurlandsbraut. mbl.is/Unnur Karen

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins óskar eftir liðsinni fólks sem getur aðstoðað við sýnatökur á Keflavíkurflugvelli og á Suðurlandsbraut 34 vegna mikilla anna.

Ekki er gerð krafa um menntun á sviði heilbrigðisvísinda, að því er segir í tilkynningu.

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins annast sýnatökur hjá einstaklingum sem eru með einkenni sem geta bent til Covid-19 eða samkvæmt fyrirmælum sóttvarnalæknis auk sýnatöku vegna ferðalaga erlendis.

Viðkomandi þarf að vera reiðubúinn að koma tímabundið til starfa með skömmum fyrirvara, hvort sem er í fullt starf, hlutastarf eða tímavinnu, eftir því sem aðstæður leyfa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert