Tryggingafélög bjóða í einhverjum tilfellum endurgreiðslu kostnaðar sem kemur til vegna kórónuveirusmits erlendis, þ.e. læknis- og lyfjakostnað eða viðbótarkostnað sem fellur til vegna lengri dvalar.
Í fréttum mbl.is í gær var greint frá því að Íslendingum, og öðrum, sem greinast smitaðir af kórónuveirunni erlendis, er óheimilt að fljúga í almenningsflugi til Íslands.
Þeir þurfa því að sæta sinni einangrun erlendis, nema þeir geti útvegað sér einkaflug eða sjúkraflug. Þannig má segja að langflestir Íslendingar sem smitast erlendis verði strandaglópar.
Samkvæmt stjórnarskrá er óheimilt að meina Íslendingum að koma til Íslands en Kamilla Sigríður Jósefsdóttir, staðgengill sóttvarnalæknis, segir skýrt að smitaðir Íslendingar megi ekki fara í áætlunarflug.
Á vef Sjóvár segir í skilmálum um ferðavernd félagsins um sjúkrakostnað erlendis þá séu viðskiptavinir tryggðir ef veikindi eða slys valda ófyrirséðum útgjöldum.
„Því getur komið til endurgreiðslu kostnaðar úr Ferðavernd, að heild eða hluta, ef greining Covid-19 leiðir til læknis- eða lyfjakostnaðar og/eða viðbótardvalar- og ferðakostnaðar. Skýr gögn þurfa að liggja fyrir þessu til staðfestingar og er hvert mál er skoðað með tilliti til aðstæðna og reglna sem gilda á því svæði sem ferðast var til.“
Sömu sögu er að segja af tryggingafélaginu Verði. Á vef félagsins segir að „erlendur sjúkrakostnaður og aukinn kostnaður sem kann að skapast vegna veikinda er bættur úr ferðatryggingum Varðar og kortatryggingu Arion banka og Landsbanka, samkvæmt skilmálum hverrar tryggingar fyrir sig.“
Viðskiptavinir þessara tryggingafélaga, sem eru með áðurnefndar ferðatryggingar, eiga því von á að geta fengið endurgreiddan þann kostnað sem fellur til vegna veirusmits erlendis.
Í fyrirspurn mbl.is til Sjóvár var spurt hvort tryggingafélög byðu sjálf upp á endurgreiðslu kostnaðar vegna Covid-smits erlendis, eða hvort félögin væru skyldug til þess á grundvelli laga um vátryggingar.
Í svari Sjóvár segir:
„Almenna reglan er sú að frjálst sé að semja um efni vátryggingasamninga, það gildir m.a. um ferðatryggingar. Ferðatryggingar Sjóvár innihalda ekki sérstaka vernd vegna Covid-sýkinga en undanskilja ekki heldur slík veikindi. Því gildir orðalag skilmálanna óháð því hvaða sjúkdóm um er að ræða. Það er sem sagt engin lagaskylda sem mælir fyrir um greiðslu lyfjakostnaðar og/eða viðbótardvalar- og ferðakostnað, umfram það sem leiðir af skilmálum tryggingarinnar.“