Sjálfstæðisflokkur stærstur í nýjum Þjóðarpúlsi

Nú í haust mun liggja fyrir hverjir taka sæti á …
Nú í haust mun liggja fyrir hverjir taka sæti á þingi. Gengið verður til kosninga 25. september. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Fengi flokkurinn 24,1% atkvæða ef gengið yrði til kosninga í dag. Vinsti-grænir mælast þá næststærstir með um 13,8% fylgi. Samfylking, Píratar og Framsóknarflokkur koma þar næst og mælast allir með í kringum 12% fylgi.

Helstu breytingar á fylgi flokkanna eru að fylgi Samfylkingar eykst um rúmlega tvö prósentustig milli mælinga. Sama er upp á teningunum með Framsókn, en flokkurinn bætir einnig við sig tæpum tvemur prósentustigum. Fylgi Viðreisnar tekur dýfu en fylgi flokksins minnkar um ríflega tvö prósentustig.

Litlar breytingar mælast á fylgi annarra flokka milli mælinga eða undir einu prósentustigi.

Sjálfstæðisflokkur fengi þá rúmlega 24%, Vinstri-grænir tæplega 14%, Píratar rúm 12%, Framsókn tæplega 12%, Viðreisn tæp 9%, Miðflokkur rúmlega 7%, Sósíalistaflokkur Íslands fengi þá 5,4% og Flokkur fólksins 4% slétt.

Stuðningur við ríkisstjórnina stendur í raun í stað milli mælinga en tæplega 59% svarenda er tóku afstöðu sögðust styðja ríkisstjórnina.

Um einn af hverjum tíu svarenda tók ekki afstöðu eða vildi ekki gefa hana upp. 8% svarenda sögðust myndu skila auðu eða ekki kjósa yfirhöfuð.

Fylgi flokka samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup.
Fylgi flokka samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup. Skjáskot/Gallup
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert