67 smit innanlands

Sýnataka vegna Covid-19 fer fram við Suðurlandsbraut.
Sýnataka vegna Covid-19 fer fram við Suðurlandsbraut. mbl.is/Eggert Jóhannesson

67 kór­ónu­veiru­smit hafa greinst inn­an­lands eft­ir sýna­töku gær­dags­ins. Þetta kem­ur fram í upp­færðum töl­um á covid.is. 31 var í sóttkví við greiningu eða um 46%. 

Alls eru nú 1.244 í einangrun og 2.155 í sóttkví. Fimmtán eru á sjúkrahúsi með veiruna, en þeir voru tólf í gær. 

Í gær greindust 51 við einkennasýnatöku og 16 við sóttkvíar- og handahófsskimanir. Einn greindist á landamærunum. 

Af þeim sme greindust í gær voru 50 fullbólusettir og 15 óbólusettir. 

Smit­töl­ur, rétt eins og fjöldi sýna, í dag og gær voru tals­vert lægri en í síðustu viku. Hjör­dís Guðmunds­dótt­ir, upp­lýs­inga­full­trúi al­manna­varna­deild­ar, sagði í sam­tali við mbl.is í gær að viðbúið væri að færri sýni yrðu tek­in yfir versl­un­ar­manna­helg­ina. Koma verður í ljós hvort bæði sýn­um og smit­um eigi eft­ir að fjölga eft­ir langa helgi. 

Í gær voru 1.459 sýni tekin við sóttkvíar- og handahófsskimanir. 431 sýni voru tekin á landamærunum og 1.193 sýni voru tekin við einkennasýnatöku. 

Í fyrradag höfðu 83 smit greinst þegar tölur voru uppfærðar. Nú liggur fyrir að 86 smit hafi greinst í fyrradag. 

 

Fréttin hefur verið uppfærð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert