151 smit innanlands

Fjöldi fólks hefur verið skimaður fyrir Covid-19 í fimmtu bylgju …
Fjöldi fólks hefur verið skimaður fyrir Covid-19 í fimmtu bylgju faraldursins. mbl.is/Oddur

151 kór­ónu­veiru­smit hefur greinst inn­an­lands eft­ir sýna­töku gær­dags­ins. Þetta kem­ur fram í upp­færðum töl­um á covid.is. Þrjú virk smit greindust við landamæraskimun. 

Er það næstmesti fjöldi innanlandssmita sem greinst hefur á einum sólarhring hér á landi en þau voru 154 á föstudaginn fyrir tæpri viku.  

Af þeim sem greind­ust í gær voru 68 í sótt­kví við grein­ingu, rúm­lega 45%.

Alls eru nú 1.388 í ein­angr­un og 1.988 í sótt­kví.  Átján eru á sjúkra­húsi með veiruna, en þeir voru sextán í gær. 

Af jákvæðum sýnum í gær greind­ust 133 í ein­kenna­sýna­töku og 18 við sótt­kví­ar- og handa­hófs­skiman­ir. 94 eru full­bólu­sett­ir og 55 óbólu­sett­ir. Þá er bólu­setn­ing haf­in hjá tveimur. 

Uppsafnaður fjöldi innlagna á gjörgæslu vegna Covid-19 hefur aukist um tvo síðan í gær. 

Fréttin hefur verið uppfærð.

 



 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert