Ísland orðið rautt

Kort Sóttvarnastofnunar Evrópu sem uppfært var í dag
Kort Sóttvarnastofnunar Evrópu sem uppfært var í dag

Ísland er orðið rauðmerkt á korti Sóttvarnastofnunar Evrópu

Kortið er uppfært á fimmtudögum og var Ísland appelsínugult þangað til í dag. Stuðst er við samræmdan litakóða þar sem lönd eru flokkuð í mismunandi hættuflokka eftir nýgengi smita og hlutfalli jákvæðra sýna. 

Lönd eru rauðmerkt ef nýgengi Covid-smita síðustu fjórtán daga er ýmist hærra en 200, og lægra en 500, eða ef hlutfall jákvæðra sýna er hærra en fjögur prósent. 

Nýgengi smita á Íslandi er nú 394,6 samkvæmt covid.is. 

Hvert og eitt ríki metur aðstæður

Litakóðun­ar­kerfið hef­ur þann til­gang að veita upp­lýs­ing­ar um stöðu heims­far­ald­urs­ins í hverju landi fyr­ir sig svo hægt sé að bera þau sam­an og átta sig á aðstæðum.

Það er svo und­ir hverju landi komið hvaða tak­mark­an­ir kunna að fylgja í kjöl­farið. Komið hefur fram að ríki séu í meira mæli farin að líta til fleiri þátta en fjölda smita í sínum tilmælum, svo sem bólusetningarhlutfalls og fjölda innlagna á spítala. Þá nota sum í Evrópu sín eigin yfirlitskort til að meta áhættu, svo sem Þýskaland og Bretland. 

Í til­mæl­um frá Evr­ópu­sam­band­inu er mælt gegn ferðum til og frá rauðum svæðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert