84 smit í gær – 141 í fyrradag

Frá sýnatöku.
Frá sýnatöku. mbl.is/Árni Sæberg

Minnst 84 kór­ónu­veiru­smit greindust innanlands í gær, þar af 60 utan sóttkvíar. 141 smit greindist daginn þar á undan, þar af 89 utan sóttkvíar. Þetta kem­ur fram í upp­færðum töl­um á covid.is. 29 voru á sjúkra­húsi í gær veikir af Covid-19.

14 daga nýgengi innanlands á hverja 100.000 íbúa stendur nú í 423. Nýgengið á landamærunum er nú 5,2.

3% sýna jákvæð

1.755 eru í sóttkví, 1.376 í einangrun og 937 í skimunarsóttkví.

Ekki hef­ur verið gefið út hversu marg­ir þeirra sem greind­ust í gær voru bólu­sett­ir. Þær töl­ur verða gefn­ar út fyr­ir klukk­an 16:00. 

Tæplega 4.000 sýni voru tekin í gær, um 3% þeirra voru jákvæð.

Einn greindist með virkt smit á landamærum.

Fréttin verður uppfærð

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert