Viðgerð á sæstreng lokið

Sæstrengurinn tengir Ísland við Færeyjar og Skotland.
Sæstrengurinn tengir Ísland við Færeyjar og Skotland. mbl.is/Steinunn Ásmundsdóttir

Bilanagreiningu á fjarskiptasæstrengnum FARICE-1 lauk í gær og var ráðist í viðgerð samstundis. Kerfið er núna komið í fullan rekstur.

Tæknimenn höfðu unnið að bilanagreiningu á sæstrengnum frá því að bilun á honum olli sambandsleysi í lok júlí. Síðan þá áttu sér stað nokkrar truflanir með útföllum yfir strenginn, að því er segir í tilkynningu.

FARICE-1 strengurinn er annar af tveimur fjarskiptasæstrengjum Farice sem tengja Ísland við Evrópu. Hann liggur frá Seyðisfirði til Skotlands. Hinn strengurinn nefnist DANICE.

Högun Farice gerir ráð fyrir að bilun geti átt sér stað í einum streng án þess að talsamband eða internet-þjónusta skerðist. 

Farice er með í undirbúningi lagningu á þriðja strengnum ÍRIS, sem mun komast í virkni fyrir árslok 2022 og eykur það fjarskiptaöryggi landsins enn frekar með þremur fjarskiptasæstrengjum sem tengja Ísland við Evrópu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert