Bíða spennt eftir að hraunið flæði yfir skurðinn

Grafinn hefur verið skurður í mynni Nátthaga og í hann …
Grafinn hefur verið skurður í mynni Nátthaga og í hann lagðar lagnir, rör og ýmsar tegundir af einangrunar- eða fylliefnum. Ljósmynd/Landsnet

Grafinn hefur verið skurður í mynni Nátthaga í nágrenni við gosstöðvarnar og í hann lagðar lagnir, rör og ýmsar tegundir af einangrunar- eða fylliefnum. Þar á svo að freista þess að mæla áhrif hraunrennslis á lagnir í jörðu. 

Frá þessu greinir Landsnet í tilkynningu. 

Verkefnið snýst um að freista þess að mæla áhrif hraunrennslis …
Verkefnið snýst um að freista þess að mæla áhrif hraunrennslis á lagnir í jörðu. Ljósmynd/Landsnet

Þar segir, að Landsnet hafi fengið afnot af öðrum enda skurðsins og í hann verði settur strengsandur og hann þjappaður eftir kúnstarinnar reglum. Þá verði hitamælar settir í skurðinn og svo sé fyllt upp í hann.

„Svo bíðum við spennt og vonumst til þess að hraunið renni yfir skurðinn. Heppnist þessi tilraun vonumst við til þess að eignast mæliniðurstöður sem telja má einstakar á heimsvísu og verða mjög mikilvægt innlegg í vitneskju um áhrif hraunflæðis á jarðstrengi og aðra innviði sem grafnir eru í jörðu,“ segir í tilkynningunni. 

Heppnist þessi tilraun þá er vonast til þess að vísindamenn …
Heppnist þessi tilraun þá er vonast til þess að vísindamenn eignist mæliniðurstöður sem telja megi einstakar á heimsvísu. Ljósmynd/Aðsend

Þá kemur fram að aðrir sem komi að þessu verkefni séu m.a. Almannavarnir, Jarðvísindastofnun HÍ, Veðurstofa Íslands, Landsvirkjun, Neyðarlínan, Verkís, Efla, Míla, Gagnaveitan, Tensor, Rafholt o.fl. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert