„Við erum einmitt ekki öll á sama báti“

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, forseti ASÍ. Ljósmynd/Aðsend

Þegar fólk, sem hefur verið svipt atvinnuöryggi sínu til lengri tíma og tekið skellinn á þeim forsendum að „við séum öll á sama báti“, les tekjublaðið situr eftir sú eðlilega tilfinning að sumt fólk tók skellinn á meðan aðrir mökuðu krókinn,“ segir Drífa Snædal, for­seti Alþýðusam­bands Íslands.

Þetta kem­ur fram í pistli Drífu sem birt­ist á vef sam­tak­anna í dag.

Drífa bendir á „ofurtekjur karla og nokkurra kvenna“ liggi nú fyrir. Það sé sjálfsagt og eðlilegt að við fáum upplýsingar um tekjur fólks og ekki síst framlag til samfélagsins og þeirra kerfa sem við treystum öll á og gætum ekki lifað án.

„Það sem vekur athygli að þessu sinni umfram annað eru laun forstjóra og yfirmanna hjá þeim fyrirtækjum sem hafa fengið hvað hæstu ríkisstyrkina til að viðhalda ráðningasamböndum, fengið tekjufallsstyrki, uppsagnarstyrki og niðurgreidd laun til að ráða fólk aftur til starfa,“ segir Drífa.

Hún segir að sett sé krafa á láglaunafólk um að sýna atvinnurekendum tryggð með því að mæta aftur til erfiðra starfa um leið og kallið kemur og sama hvaðan það kemur.Viðbrögðin hljóta þó að litast af tryggð þess sama atvinnulífs eða vinnustaðar við starfsfólk á erfiðum tímum.“

Gjáin milli stjórnmálanna og vilja þjóðarinnar hvergi jafn breið

Drífa segir heilbrigðismálin vera eitt af stóru málunum þessa dagana og bendir á heilbrigðisþing sem stóð yfir í dag.

Hún segir að gjáin milli stjórnmálanna og vilja þjóðarinnar hvergi jafn breiða og að allar kannanir sem gerðar hafa verið sýna ríkan vilja fólks til að hafa öfluga opinbera heilbrigðisþjónustu án þess að markaðsöflin ráði þar för.

Meirihluti stjórnmálanna vilji hins vegar halda áfram að „svelta hið opinbera kerfi þar til markaðsöflin mæta eins og frelsandi englar til bjargar þegar allt er komið í óefni.“

Drífa segir þetta til lengri tíma vera óheillaskref. „Hið arðvædda kerfi mismunar, er dýrara og kjör almenns starfsfólks verri þótt einstaka sérfræðingar hagnist á því.“

Hún segir sterkt opinbert kerfi vera lýðheilsumál, jafnréttismál og einn af hornsteinum jöfnuðar þar sem ekki er mismunað eftir tekjum, búsetu eða félagslegri stöðu.

„Þessi mantra verður ekki of oft endurtekin. Um þetta verður kosið í september.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert