Börn bólusett í Höllinni í dag

Bólusett verður í Laugardalshöll í dag.
Bólusett verður í Laugardalshöll í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Börn sem fædd eru á árunum 2006 og 2007 verða bólusett í Laugardalshöll í dag.

Bólusetning árgangs 2006 hefst klukkan 10 en árgangs 2007 klukkan 12.40, að því er kemur fram á vef heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Bóluefnið sem verður notað er frá Pfizer/BioNTech og er það bóluefni sem fyrst fékk markaðsleyfi, bæði fyrir fullorðna og síðar fyrir börn á þessum aldri.

„Það er komin töluverð reynsla á notkun þess fyrir þennan aldurshóp erlendis og hefur gengið mjög vel,“ segir á vefnum.

Á morgun verða börn fædd 2008 og 2009 síðan bólusett í Höllinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert