Ástand byssumannsins stöðugt

Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari.
Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari. Ljósmynd/Hanna Andrésdóttir

Kolbrún Benediktsdóttir, varahéraðssaksóknari, segir ástand mannsins sem var skotinn af lögreglu í gær vera stöðugt. Maðurinn er á gjörgæsludeild en Kolbrún gat ekki gefið nánari upplýsingar um líðan hans eða rannsókn málsins. 

Maðurinn hóf skothríð í götunni Dalsel á Egilsstöðum laust eftir klukkan 22 í gærkvöldi. Lögregla bað manninn ítrekað að láta vopnið af hendi en hann hunsaði fyrirmælin og skaut til lögreglu.

Lögreglan skaut þá manninn sem var síðan fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur þar sem undirgekkst aðgerð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert