Lögreglan kýs að tjá sig í tilkynningu

Lögreglan á Austurlandi mun senda frá sér tilkynningu um skotárás í Dalseli á Egilsstöðum eftir hálftíma. Í millitíðinni verst hún fregna. 

Eins og greint hefur verið frá gekk maður um þrítugt berserksgang í Dalseli um klukkan hálfellefu í kvöld. Endaði það á því að lögreglan skaut hann í kviðinn. Maðurinn hafði skotið á glugga í götunni í rúman hálftíma áður en lögreglan stöðvaði hann. 

Að sögn íbúa í götunni virðist maðurinn hafa verið með meðvitund þegar hann var fluttur á brott.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert