Í gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna

Ótímabært fráfall konu á sextugsaldri er til rannsóknar hjá lögreglu. …
Ótímabært fráfall konu á sextugsaldri er til rannsóknar hjá lögreglu. Konan var vistmaður á geðdeild spítalans. mbl.is/​Hari

Gæsluvarðhald yfir hjúkrunarfræðingi sem sætir rannsókn vegna andláts konu á Landspítalanum rennur út á morgun. Gæsluvarðhaldsins var krafist á grundvelli rannsóknarhagsmuna.

Þetta staðfestir Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is. Hann segir málið í rannsókn og vildi því ekki tjá sig um það efnislega að svo stöddu. 

Hjúkrunarfræðingur á sextugsaldri til rannsóknar

Tilkynning barst frá Landspítalanum í gærmorgun um að lögregla hefði til rannsóknar andlát konu á sextugsaldri sem lést á spítalanum fyrr í mánuðinum. Spítalinn tilkynnti málið sjálfur til lögreglu. 

Síðar hefur komið fram að sú grunaða, hjúkrunarfræðingur á sextugsaldri, hafi unnið á geðdeild og hin látna verið vistmaður á deildinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert