Landsliðsmaður sagður hafa gengið berserksgang

Ragnar Sigurðsson.
Ragnar Sigurðsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ragnar Sigurðs­son, lands­liðs­maður í knattspyrnu, er sagður hafa gengið berserksgang á heimili sínu aðfaranótt 5. júlí 2016 og meðal annars haft þar í hótunum við þá­verandi eigin­konu sína.

Þetta hefur Fréttablaðið eftir heimildum sínum og greinir frá á vef sínum í kvöld.

Segir í umfjöllun blaðsins að þegar lögreglan kom á staðinn hafi Ragnar flúð vettvang. Samkvæmt heimildum þess hafi íbúðin verið í slæmu ástandi og sjáanlegar skemmdir víða.

Knattspyrnusambandið hafi þá fengið upplýsingar um málið frá nágrönnum hjónanna, en ekkert aðhafst.

Tekið er fram að fyrr um kvöldið, eða hinn 4. júlí, hafi komu landsliðsins til Íslands eftir vel lukkaða för til Frakklands á EM í knattspyrnu verið fagnað í miðborg Reykjavíkur.

Símtal við Neyðarlínuna og skemmdir á íbúðinni

Fréttablaðið hefur eftir heimildum sínum að Ragnar hafi verið boðaður í skýrslu­töku nokkrum dögum síðar, og mætt ásamt lögmanni sínum til hennar.

Þá hafi hann neitað að hafa beitt eigin­konu sína of­beldi eða sýnt ógnandi hegðun.

Fullyrt er sömuleiðis að lögreglan hafi tekið skýrslu af þá­verandi eigin­­konu Ragnars um kvöldið.

„En þrátt fyrir skýrslu hennar, á­­stand í­búðarinnar, sím­tal ná­granna við starfs­mann Neyðar­línunnar og sjáan­­legar skemmdir á í­búðinni felldi lög­reglan málið niður. Á­kæra var aldrei gefin út, hvorki fyrir eigna­­spjöll né heimilis­of­beldi,“ segir í umfjöllun blaðsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert