Óvissustigi lýst yfir

Frá Skaftárhlaupi fyrir þremur árum.
Frá Skaftárhlaupi fyrir þremur árum. mbl.is/RAX

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna Skaftárhlaups.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra.  

Hlaup í Skaftá.
Hlaup í Skaftá. Kort/Veðurstofa Íslands

„Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila,“ segir í tilkynningunni.

„Síðustu daga hefur rafleiðni hækkað í Skaftá og í morgun fór vatnshæð að stíga.  Talið er að vatnið komi úr Vestari Skaftárkatli en þau hlaup eru minni en þau sem koma úr Eystri Skaftárkatli.

Brennisteinsvetnismengun getur gætt þar sem hlaupvatn kemur undan jökli og getur skaðað slímhúð í öndunarfærum og augum auk þess sem árnar geta flætt yfir bakka og vegi sem liggja þeim nærri. Ferðafólki er eindregið ráðlagt að halda sig fjarri farvegi Skaftár ofan Skaftárdals svo og jöðrum Skaftárjökuls, Tungnárjökuls og Síðujökuls á meðan hlaupið stendur yfir," segir þar einnig. 

Fram kemur að ítarlegri upplýsingar um Skaftárhlaup og framvindu þess megi finna á vef Veðurstofu Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert