Segir réttargæslumann Jóhönnu hafa lagt til 300 þúsund

Niðurstaðan í málinu var sú að Kolbeinn greiddi samtals sex …
Niðurstaðan í málinu var sú að Kolbeinn greiddi samtals sex milljónir króna sem sáttargreiðslu og segir Almar þá fjárhæð hafa verið í engu samræmi við atvik málsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Almar Þór Möller, lögmaður Kolbeins Sigþórssonar, segir það rangt að Jóhanna Helga Jensdóttir og Þórhildur Gyða Arnarsdóttir hafi fengið boð frá lögmanni Kolbeins um að skrifa undir þagnarskyldusamning gegn greiðslu á 300.000 krónum.

Almar segist hafa átt í samskiptum við réttargæslumann Jóhönnu Helgu, og þann 3.apríl 2018 hafi honum borist tölvupóstur frá réttargæslumanninum sem var svohljóðandi:

„Hún sagðist mögulega vera tilbúin að falla frá kærunni gegn greiðslu miskabóta, bað mig að skoða það og heyra í þér.  Ég kíkti á dómafordæmi og fyrir brot gegn 209./217. hafa miskabæturnar verið í kringum 300 þús kall.

Að teknu tilliti til þess geri ég eftirfarandi tillögu:

Miskabætur: 300.000,-

Lögmannskostnaður: 109.120,- (útkall (54þús) + 2 tímar (17þús))

ALLS: 409.120

Er þetta eitthvað sem þið gætuð mögulega fallist á?“

Því segir hann að staðhæfingin Jóhönnu í kvöldfréttum Stöðvar 2 þann 2. september um að þær höfðu fengið boð frá lögmanni um að skrifa undir þagnarskyldusamning ranga.

Niðurstaðan í málinu var sú að Kolbeinn greiddi samtals sex milljónir króna sem sáttargreiðslu og segir hann þá fjárhæð hafa verið í engu samræmi við atvik málsins.

Hörður Felix Harðarson og Almar Þór Möller eru lögmenn Kolbeins Sigþórssonar í þessu máli, en Hörður skrifaði í gær grein þar sem hann gagnrýndi ákvörðun KSÍ í málinu og sagði ekki rétt að hann hefði boðið þagnarskyldusamning.  

Uppfært kl 11:00:

Í grein Harðar í gær kom fram að hann hefði ekki starfað fyrir KSÍ né boðað Þórhildi á sáttafund með stjórnarmeðlimum sambandsins. Hann hafi heldur ekki verið í beinum samskiptum við Þórhildi eða boðið þagnarskyldusamning.

Almar segir í samtali við mbl.is hann hafi verið í samskiptum við réttargæslumann Jóhönnu, en að það sama eigi við um hann og Hörð. Hann hafi ekki verið í beinum samskiptum við Jóhönnu fyrr en á sáttafundinum sjálfum. Þá hafi Almar ekki starfað fyrir KSÍ eða boðað Jóhönnu á sáttafund með stjórnarmeðlimum sambandsins og hann hafi aldrei boðið þagnarskyldusamning. Ítrekar hann að endanlegur samningur sem var undirritaður hafi ekki þagnarskylduákvæði.

Fram kom í viðtali RÚV við Þórhildi á föstudaginn fyrir viku að hún hafi ekki skrifað undir þagnarskyldusamning.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert