Hættustigi lýst yfir vegna Skaftárhlaups

Hlaup hófst í Eystri-Skaftárkatli í hádeginu í dag og hefur …
Hlaup hófst í Eystri-Skaftárkatli í hádeginu í dag og hefur ríkislögreglustjóri lýst yfir hættustigi almannavarna. mbl.is/RAX

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi lýsir yfir hættustigi almannavarna vegna Skaftárhlaups. Hlaup úr Eystri-Skaftárkatli hófst nú um hádegisbil en hlaup úr eystri katlinum eru yfirleitt stærri en þau sem koma úr vestari katlinum. 

Geti náð meiri útbreiðslu

Í tilkynningu almannavarna segir að vatn geti náð meiri útbreiðslu en síðustu daga og má búast við einhverjum samgöngutruflunum á fjallvegum nærri Skaftá. Vegfarendur eru því beðnir um að fylgjast vel með upplýsingum um færð á vegum. 

„Brennisteinsvetnismengun getur gætt þar sem hlaupvatn kemur undan jökli og getur skaðað slímhúð í öndunarfærum og augum auk þess sem árnar geta flætt yfir bakka og vegi sem liggja þeim nærri. Ferðafólki er eindregið ráðlagt að halda sig fjarri farvegi Skaftár ofan Skaftárdals svo og jöðrum Skaftárjökuls, Tungnárjökuls og Síðujökuls á meðan hlaupið stendur yfir,“ segir í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert