Hlýjasta sumarið í sögu veðurmælinga

Mikil aðsókn hefur verið í hvalaskoðunarferðir á Eyjafirði í blíðviðrinu …
Mikil aðsókn hefur verið í hvalaskoðunarferðir á Eyjafirði í blíðviðrinu sem hefur verið þar um slóðir. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Sumarið 2021 hefur verið einstaklega hlýtt. Þetta er hlýjasta sumar frá upphafi mælinga á Akureyri, Egilsstöðum, Dalatanga og Grímsstöðum á Fjöllum og það næsthlýjasta í Grímsey og Bolungarvík. Á Akureyri hafa mælingar staðið yfir í 141 ár samfellt og 148 ár í Grímsey.

Í tíðarfarsyfirliti Veðurstofunnar, þar sem fjallað er um mánuðina júní, júlí og ágúst, segir að sumarið hafi byrjað í kaldara lagi. Óvenjukalt var á landinu um miðjan júní og það frysti og snjóaði víða í byggð. Gróður tók hægt við sér eftir kalt og þurrt vor.

Í lok júní hlýnaði til muna og við tóku óvenjuleg hlýindi á Norður- og Austurlandi sem héldu áfram nánast óslitið út sumarið. „Það var óvenjusólríkt og þurrt í þeim landshlutum á meðan þungbúnara og tiltölulega svalara var suðvestanlands,“ segir í yfirlitinu.

Dagar þegar hámarkshiti mældist 20 stig eða meira einhvers staðar á landinu voru 57 í sumarmánuðunum þremur og hafa slíkir dagar aldrei verið fleiri (þeir voru 8 í júní, 29 í júlí og 20 í ágúst).

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert