Tafir á framkvæmdum við Fossvogsskóla

Vinna við uppsetningu einingahúsanna á lóð Fossvogsskóla hófst 30. ágúst. …
Vinna við uppsetningu einingahúsanna á lóð Fossvogsskóla hófst 30. ágúst. Búist er við að kennsla geti hafist þar um næstu mánaðamót. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tafir verða á vinnu við uppsetningu færanlegra kennslustofa á skólalóð Fossvogsskóla og því mun kennsla í 2. til 4. bekk verða áfram í húsnæði Hjálpræðishersins. Eða þar til húsin verða tilbúin. 

Í pósti frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, sem hefur verið sendur á foreldra, segir að samkvæmt upplýsingum frá Terra, sem sér um uppsetninguna, verði tafir á því að þær verði tilbúnar miðað við upphaflega áætlun um að uppsetningu yrði lokið þann 15. september.

Seinkun á afhendingu og húsin hönnuð til nota í heitari löndum

„Tafirnar má að mestu rekja til seinkunar á seinni hluta sendingarinnar vegna Covid-19. Að auki eru einingarnar hannaðar til nota í heitari löndum en á Íslandi og hefur vinna við að þykkja útveggi verið meiri en reiknað var með. Þetta hefur einnig tafið framkvæmdaferlið,“ segir í póstinum. 

Annar til fjórði bekkur verður því enn um sinn í …
Annar til fjórði bekkur verður því enn um sinn í húsnæði Hjálpræðishersins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Af framangreindu er ljóst að kennsla í 2. - 4. bekk mun því verða áfram í húsnæði Hjálpræðishersins eða þar til einingarnar verða tilbúnar.

Starfsfólk Fossvogsskóla og nemendur hafa lýst yfir mikilli ánægju með veru sína í húsnæði Hjálpræðishersins. Þá hafa móttökur starfsfólksins þar verið sérlega hlýjar og notalegar og sannarlega hefur það lagt sitt af mörkum til að öllum líði vel þar,“ segir enn fremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert