Allt að 15 stiga hiti í dag

Kort/mbl.is

Suðvestlæg eða breytileg átt verður á landinu í dag, 3-10 metrar á sekúndu og víða bjartviðri, en skýjað með köflum suðvestanlands.

Þykknar upp vestan til síðdegis með lítils háttar rigningu.

Dálítil væta verður með köflum á morgun, en yfirleitt léttskýjað suðaustan til og á Vestfjörðum.

Hiti verður á bilinu 7 til 15 stig yfir daginn.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert