Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar hefur ákveðið að hafna öllum tilboðum sem bárust í verkið „Bryggjuhverfi vestur, landfylling“. Þóttu tilboðin sem bárust í verkið vera of há.
Morgunblaðið fékk þær upplýsingar hjá Reykjavíkurborg að verið væri að skoða hvernig ætti að bregðast við, en þetta mun seinka því að uppbygging geti hafist í hverfinu. Mögulega kann að verða skoðað hvort eitthvað hafi verið bogið við útreikninga kostnaðaráætlunar vegna þess hversu fjarri hún var öllum fjórum tilboðunum sem bárust í verkið.