Hættustigi aflétt vegna Skaftárhlaups

Skaftárhlaup hefur staðið yfir síðan 1. september.
Skaftárhlaup hefur staðið yfir síðan 1. september. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi ákveðið að aflétta hættustigi almannavarna vegna hlaups í Skaftá.

Í tilkynningu frá almannavörnum segir að við taki óvissustig.

„Lokunum vega á svæðinu er aflétt en rétt er að minna ferðafólk á að áfram má búast við mengun af brennisteinsvetni fast við ána, sérstaklega á svæðinu við upptök árinnar þar sem hún rennur undan jökli.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert