Nýtt tilfelli riðuveiki í Skagafirði

Riðuveiki hefur verið staðfest á bænum Syðra-Skörðugili í Skagafirði.
Riðuveiki hefur verið staðfest á bænum Syðra-Skörðugili í Skagafirði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Riðuveiki hefur verið staðfest á bænum Syðra-Skörðugili í Skagafirði en um 1.500 fjár eru á bænum, fullorðið fé og lömb.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun en stofnunin vinnur nú að öflun faraldsfræðilegra upplýsinga til að meta umfang smitsins og nauðsynlegar aðgerðir.

Syðra-Skörðugil er í Húna- og Skagahólfi en í því hólfi greindist síðast riða á einum bæ árið 2020. Riðuveiki hefur komið upp á Syðra-Skörðugili einu sinni áður, fyrir 30 árum eða árið 1991.

Mikilvægt að fá sýni

Á síðasta ári greindist riða á fimm bæjum í austanverðum Skagafirði, sem tilheyra Tröllaskagahólfi. Sömuleiðis á einum bæ á Vatnsnesi í Vestur-Húnavatnssýslu.

„Aukin sýnataka er fyrirhuguð á Norðurlandi vestra nú í haust og mjög mikilvægt að bændur láti héraðsdýralækni vita af fé sem drepst eða er lógað heima vegna vanþrifa, slysa eða sjúkdóma svo hægt sé að nálgast sýni úr þeim. Einnig er mikilvægt að fá sýni úr heimaslátrun,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert