Hlaupin tvö áfram í rénun

Jökulhlaupið í Skaftá hófst 1. september.
Jökulhlaupið í Skaftá hófst 1. september. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Að sögn Böðvars Sveins­sonar, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands, eru jökulhlaupin í Skaftá og Vestari-Jökulsá bæði áfram í rénun.

Upp­taka­kvísl­ar hlaups­ins í Vestari-Jökulsá koma undan Hofsjökli norðan­verðum en óvíst er þó ná­kvæm­lega hvaðan. Sérfræðingar Veðurstofunnar eiga eftir að athuga það nánar á næstu dögum.

Rafleiðni í ánni jókst í gær og náði hámarki í gærkvöldi en hefur hjaðnað eftir það. Vatnshæð og rennsli hefur ekki aukist í ánni.

„Þetta hlaup er sennilega mjög svipað og var árið 2013,“ segir Böðvar.

Á vef Veðurstofunnar segir að það hlaup hafi hafist 21. ágúst þegar Skagfirðingar urðu varir við mikinn brennisteinsþef. Hlaupið náði hámarki 24. ágúst en hjaðnaði svo á 3 til 4 dögum. Rennsli árinnar jókst ekki svo að vandræði hlytust af.

Búast má við að hlaupið í Skaftá klárist á næstu dögum að öllu óbreyttu. „Hlaupið hefur minnkað mjög mikið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert