Þórólfur hefur skilað inn minnisblaði

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir skilaði minnisblaði um stöðu Covid-faraldursins til Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í morgun.

Þetta segir Svandís í samtali við RÚV.

Hún segist eiga von á að frekar tilslakanir verði kynntar á þriðjudaginn eftir ríkisstjórnarfund.

Núgildandi reglugerð um takmörkun á samkomum gilda til og með 17. september. 

Ekki náðist í heilbrigðisráðherra við vinnslu fréttarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert