Opið að gossvæðinu að nýju

Opnað hefur verið fyrir umferð að gossvæðinu að nýju.
Opnað hefur verið fyrir umferð að gossvæðinu að nýju. mbl.is/Kristinn Magnússon

Heimilt er að ganga upp að eldgosinu í Geldingadölum að nýju. 

Samkvæmt upplýsingum frá lögregluþjónum á vakt hjá lögreglunni á Suðurnesjum var opnað fyrir umferð um svæðið í morgun eftir að lokað hafði verið fyrir hana í gærkvöldi. 

Að sögn lögregluþjóna á vakt er engu að síður vont veður til útivista, slæmt skyggi og úrkoma. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert