Beint: Þroski og þróun ungra íþróttaiðkenda

mbl.is/Ernir

Dr. Amanda Johnson, fyrrverandi yfirsjúkraþjálfari Manchester United, mun halda fyrirlestur í HR í dag um þroska og þróun ungra íþróttaiðkenda og þætti sem geta haft áhrif á íþróttaferil þeirra. Fundurinn hefst kl. 12 og streymt verður frá honum hér á mbl.is. 

„Dr. Amanda Johnson er með doktorsgráðu frá Manchester háskóla þar sem hún rannsakaði tengsl á milli líkamlegs þroska ungra elítu knattspyrnumanna og meiðslasögu þeirra. Hún hefur m.a. starfað hjá enska knattspyrnusambandinu sem sjúkraþjálfari yngri landsliða Englands bæði karla og kvenna. Hún starfaði sem yfirsjúkraþjálfari hjá Manchester United í tíu ár á þeim tíma þegar Alex Ferguson var þar við stjórnvölinn og sömu stöðu gegndi hún í átta ár hjá Aspire Akademíunni í Katar. Amanda býr yfir mikilli reynslu af að starfa með ungu íþróttafólki þar sem hún hefur á sínum ferli einnig starfað m.a. með frjálsíþróttafélögum og sundliðum,“ að því er segir í tilkynningu frá HR. 

Nánar hér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert