Næsta lægð úr suðvestri nálgast

Á fimmtudag nálgast næsta lægð úr suðvestri.
Á fimmtudag nálgast næsta lægð úr suðvestri. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Suðvestanátt og skúrir verða á sunnan- og vestanverðu landinu í dag, strekkingsvindur á köflum, en allvíða bjartviðri norðaustantil. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vakt hjá Veðurstofu Íslands í morgun. 

Þar segir að hægari og úrkomuminna verði á morgun, en á fimmtudag nálgist næsta lægð úr suðvestri.

„Hún verður reyndar talsvert veikari en sú sem nú er að klárast. Bæði verður vindur og úrkoma mun minni og líklega nær úrkoman lítið sem ekkert norður yfir heiðar. Áfram verður fremur milt,“ segir í hugleiðingunum. 

Veðurhorfur á landinu næstu daga samkvæmt spá Veðurstofu Íslands: 

Á miðvikudag:
Suðlæg átt, 3-10 m/s og rigning syðst, bjartviðri A-lands, en annars víða skúrir. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast á NA-landi.

Á fimmtudag:
Suðaustan 8-13 m/s og víða rigning, en úrkomulítið NA-lands. Bætir í úrkomu um kvöldið. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast á NA-landi.

Á föstudag:
Vestlæg átt, víða skúrir eða rigning og kólnar heldur.

Á laugardag og sunnudag:
Útlit fyrir suðlægar eða breytilegar áttir með vætu víða um land, en fremur milt veður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert