Í sjálfheldu í myrkri og slyddu

Frá Bolafjalli.
Frá Bolafjalli. mbl.is/Árni Sæberg

Björgunarsveitinni í Bolungavík barst útkall laust eftir klukkan 22 í gærkvöldi vegna göngufólks í sjálfheldu í Bolafjalli, ofan við Skálavík. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu. 

Að sögn Davíðs Más Bjarnasonar, upplýsingafulltrúa Landsbjargar, voru aðstæður á vettvangi krefjandi; kolniðamyrkur og slydda var á fjallinu og fyrsta verkefni björgunarsveitafólks var að staðsetja fólkið sem tók um einn og hálfan tíma.

Var fólkið statt ofarlega í fjallinu og var því hægt að keyra upp á fjallið og nálgast þau ofan frá.

Fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörgu að á miðnætti var búið að koma fólkinu til hjálpar.  Var það óslasað og fékk far niður á láglendi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert