Kristján Þór skipar starfshóp um CBD-olíu

Kristján Þór Júlíusson.
Kristján Þór Júlíusson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur óskað eftir tilnefningum á fulltrúum heilbrigðisráðuneytisins, Lyfjastofnunar og Matvælastofnunar í starfshóp um framleiðslu og markaðssetningu á CBD-olíu (Cannabidiol). Hópnum verður falið að yfirfara núgildandi löggjöf og semja frumvarp um heimild til notkunar CBD-olíu í matvælum.

Fram kemur í tilkynningu, að CBD-olía sé ein fjölmargra afurða sem vinna megi úr iðnaðarhampi en í júní sl. var gerð lagabreyting sem heimilar innflutning á fræjum til ræktunar á iðnaðarhampi.

Þær tegundir iðnaðarhamps sem heimilt er að rækta á Íslandi innihalda lágt THC gildi og fyrir vikið flokkast þær ekki sem vímugjafar. Engu að síður heimilar núgildandi löggjöf ekki framleiðslu og markaðssetningu á CBD-olíu sem fæðubótaefni á Íslandi, að því er ráðuneytið greinir frá. 

„Olían er er e.t.v. sú afurð sem þykir hvað verðmætust og mikil eftirspurn er eftir henni um þessar mundir. Ráðuneytið hefur orðið vart við mikinn áhuga á CBD- olíu og mögulegri framleiðslu og markaðssetningu á henni,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert