37 smitaðir en einungis 15 bólusettir

Sýnataka við Suðurlandsbraut.
Sýnataka við Suðurlandsbraut. mbl.is/Oddur

37 kórónuveirusmit greindust í gær. Daginn þar áður voru þau 26 talsins.

Af þeim sem smituðust eru 22 ekki bólusettir, eða tæp 60%. Fimmtán eru bólusettir.

Í því samhengi ber að nefna að 13% landsmanna, 12 ára og eldri, eru ekki fullbólusett.

Rúmlega helmingur smitanna varð því í þeim hlutfallslega litla hópi fólks og á meðal barna 11 ára og yngri.

Rétt rúmlega hundrað börn á aldrinum 0-12 ára eru með virkt smit og í einangrun.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert