Bíll endaði á hliðinni í Víðidal

Frá vettvangi.
Frá vettvangi. mbl.is/Þorsteinn

Árekstur varð á Vatnsveituvegi í Víðidal á fimmta tímanum. Við áreksturinn endaði einn bíll á hliðinni og voru sjúkrabílar sendir á vettvang ásamt dælubíl slökkviliðs. 

Varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu segir að enginn sé slasaður eftir áreksturinn og var allur hinn rólegasti.

Dælubíll slökkviliðs hafi einungis verið sendur ef ske kynni að einhver olía hafi lekið úr bílnum eins og vill verða þegar bílar enda á hliðinni. 

Uppfært kl. 18:15 Slökkviliðið lauk hreinsunarstarfi á vettvangi um hálf sex og því var lítið um umferðartafir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert