Með hníf, hnúajárn og neyðarblys

Tveir voru sviptir ökuréttindum í vikunni.
Tveir voru sviptir ökuréttindum í vikunni. mbl.is/Árni Sæberg

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum tók úr umferð í nótt vegna gruns um fíkniefnaakstur reyndist vera með hníf, hnúajárn og lyf í bifreið sinni.

Sýnatökur staðfestu neyslu fíkniefna. Sami ökumaður hafði verið tekinn úr umferð í gærmorgun af sömu sökum.  Í bifreið hans þá fann lögregla meint fíkniefni.

Annar ökumaður, grunaður um fíkniefnaakstur fyrr í vikunni, reyndist vera með kannabisefni og neyðarblys í sinni bifreið. Hann hafði áður verið sviptur ökuréttindum ævilangt, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.

Þriðji ökumaðurinn var grunaður um akstur undir áhrifum kannabisefna. Hann var með kannabis í fórum sínum.

Átta ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í vikunni og tveir til viðbótar óku sviptir ökuréttindum. Fáein umferðaróhöpp voru skráð en engin slys urðu á fólki.

Eldur kom upp í heimahúsi í vikunni. Lögregla og slökkvilið fóru á vettvang en húsráðanda hafði þá tekist að slökkva eldinn. Talsverður reykur var í húsnæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert