Þurrt suðvestanlands í dag

Hlaupari á ferðinni í Reykjavík. Yfirleitt verður þurrt um landið …
Hlaupari á ferðinni í Reykjavík. Yfirleitt verður þurrt um landið suðvestanvert í dag. mbl.is/SIgurður Unnar Ragnarsson

Spáð er vestan og norðvestan 3 til 10 metrum á sekúndu og víða dálítilli vætu, en yfirleitt verður þurrt um landið suðvestanvert.

Gengur í austan 8-15 m/s sunnantil á morgun og fer að rigna þar, en hægari og þurrt verður fyrir norðan fram á kvöld. Hiti breytist lítið.

Hiti verður á bilinu 7 til 14 stig yfir daginn, hlýjast austantil.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert