Þrír fengu 162 þúsund

Mynd/Lottó

Þrír voru með bónusvinninginn í Lottó-úrdrætti kvöldsins og voru allir vinningsmiðar í áskrift. Hver vinningshafi fær rúmar 162 þúsund krónur í sinn hlut.

Enginn var með allar fimm aðaltölurnar réttar í kvöld. Lottópotturinn verður því þrefaldur í næstu viku. 

Áætlað er að potturinn nálgist 35 milljónir. 

Enginn var með fyrsta vinning í Jóker en þrír voru með annan vinning sem nemur 100 þúsund krónum.  Einn miðinn var í áskrift, sá næsti var keyptur á lotto.is og sá þriðji í appinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert