Áframhald goss í lotuvirkni

Horft yfir Nátthagadal í gærmorgun. Fremst sést varnargarðurinn sem er …
Horft yfir Nátthagadal í gærmorgun. Fremst sést varnargarðurinn sem er ætlað að hægja á hraunrennsli að Suðurstrandarvegi ef til kemur. mbl.is/Sigurður Bogi

Haldi eldgosið við Fagradalsfjall áfram með lotuvirkni mun hraunið sem frá gígnum streymir ekki breiða úr sér yfir ýkja víðfeðmt svæði. Verði gosið hins vegar stöðugt í langan tíma aukast líkurnar á að hraunið nái lengra. Þetta segir Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur við HÍ, í samtali við Morgunblaðið.

Lítil virkni var í eldgosinu í gær, eftir að kraumað hafði hressilega í kötlum í síðustu viku og fram á helgina. Áður hafði gosið legið niðri í níu daga. Vísindamenn telja sumir að gosið geti í nokkur ár.

Nú safnast upp hraun vestan við eldgíginn í Geldingadölum og verður æ þykkara. Þar nær glóandi hraun að safnast fyrir undir storknu yfirborði, en leitar síðan framrásar í eins konar hlaupum. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

  • Engin mynd til af bloggara Freysteinn Guðmundur Jónsson: Gos
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert