Rostungurinn tjaldar til annarrar nætur

Rostungurinn Valli hefur valdið töluverðu eignatjóni undan ströndum Írlands í …
Rostungurinn Valli hefur valdið töluverðu eignatjóni undan ströndum Írlands í sumar. Skjáskot/Youtube

Rosmhvalurinn sem gerði sig gestkominn í Höfn í Hornafirði í gær er kominn aftur og lætur fara vel um sig á bryggjunni á nákvæmlega sama stað.

Hann sést óskýrt í vefmyndavél frá hafnarsvæðinu en fólk hefur gert sér ferðir til hans í kvöld og smellt af honum myndum. 

Talið er að rosmhvalurinn sé hinn þekkti vandræðagemsi Valli, sem valdið hefur milljóna tjóni erlendis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert