Sigldu slöngubát á sker við Akurey

Björgunarbátur Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.
Björgunarbátur Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Ljósmynd/Landsbjörg

Fjórir menn á slöngubát sigldu bát sínum á sker sunnan við Akurey í Kollafirði í gærkvöldi.

Björgunarsveit var ræst út sem kom mönnunum til bjargar en þeir voru mjög blautir og kaldir. Þeir voru fluttir á bráðamóttöku með sjúkrabílum. Ekki er vitað hversu miklar skemmdir urðu á bátnum.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert