Sjálfstæðisflokkurinn heldur í dag klukkan 17:00 kosningahátíð í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Meðal annars mun Bjarni Benediktsson, formaður flokksins og oddviti í Suðvesturkjördæmi, flytja ávarp og verður hægt að fylgjast með því í beinni útsendingu hér að neðan. Mun Bjarni fara yfir stóru línurnar í kosningabaráttunni sem nú stendur yfir.