Norðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs stækkar

Vatnajökulsþjóðgarður nær yfir Vatnajökul og stór svæði í nágrenni hans, …
Vatnajökulsþjóðgarður nær yfir Vatnajökul og stór svæði í nágrenni hans, rúm 14% af flatarmáli landsins. mbl.is/RAX

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, undirritaði í dag breytingar á reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð sem kveður á um stækkun á norðursvæði þjóðgarðsins.

Vatnajökulsþjóðgarður nær yfir Vatnajökul og stór svæði í nágrenni hans, rúm 14% af flatarmáli landsins. Náttúra og menningarsaga Vatnajökulsþjóðgarðs er einstök og var þjóðgarðurinn samþykktur á heimsminjaskrá UNESCO árið 2019, að því er segir í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu. 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra. mbl.is/Eggert
Með viðbótinni nú verður Vatnajökulsþjóðgarður 14.967 ferkílómetrar.
Með viðbótinni nú verður Vatnajökulsþjóðgarður 14.967 ferkílómetrar. Kort/mbl.is

Með viðbótinni nú verður Vatnajökulsþjóðgarður 14.967 km2. Stækkunin er öll á þjóðlendu innan Þingeyjarsveitar, en svæðið sem bætist við þjóðgarðinn er 299 km2 af óbyggðum víðernum á Bárðdælaafrétt austari. Svæðið sem bætist við þjóðgarðinn nær frá sveitarfélagamörkum Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps og langleiðina að Skjálfandafljóti. Vestari mörk hins stækkaða svæðis ná að mögulegu framkvæmdasvæði virkjunarkosta sem eru til meðferðar í verndar- og orkunýtingaráætlun. Hefðbundin landnýting er leyfð á svæðinu og er það í samræmi við reglugerð og vilja sveitarfélagsins, að því er ráðuneytið greinir frá.

Tekið er fram að undirbúningur stækkunar hafi verið í nánu samstarfi við Þingeyjarsveit og í samráði við stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs.

Svæðið sem bætist við þjóðgarðinn nær frá sveitarfélagamörkum Þingeyjarsveitar og …
Svæðið sem bætist við þjóðgarðinn nær frá sveitarfélagamörkum Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps og langleiðina að Skjálfandafljóti. Kort/mbl.is

„Víðernum fer sífellt fækkandi í heiminum og jöklar bráðna hratt vegna loftslagsbreytinga. Það sem eftir er af slíkum landsvæðum og náttúrufyrirbærum verður sífellt verðmætara og því mikilvægt að vernda til framtíðar fágæt náttúrufyrirbæri, landslag og víðerni.

Þá telst svæðið alþjóðlega mikilvægt fyrir heiðagæs en hátt í 10% af íslenska heiðagæsastofninum verpir á svæðinu í grónum dölum, einkum nyrst á svæðinu,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert