Kirkjur eru flestar lágt tryggðar

Arngrímur Gíslason málari frá Skörðum í Þingeyjarsýslu málaði altaristöfluna árið …
Arngrímur Gíslason málari frá Skörðum í Þingeyjarsýslu málaði altaristöfluna árið 1879 eftir frægu málverki Leonardo da Vinci af kvöldmáltíðinni. Ljósmynd/Kirkjur Íslands

Allir munir Miðgarðakirkju gjöreyðilögðust þegar kirkjan brann til grunna 21. september. Ítarleg umfjöllun um kirkjuna og gripina er í Kirkjum Íslands, 9. bindi.

Tryggingar flestra kirkna eru á forræði sóknanna. „Hver sókn er sjálfstæð fjárhags-og stjórnunareining,“ sagði séra Kristján Björnsson, vígslubiskup í Skálholti. „Kirkjur eru flestar tryggðar samkvæmt brunabótamati og það er frekar lágt.“

Prédikunarstóll. Hann var úr gömlu torfkirkjunni. Á honum var útskorin …
Prédikunarstóll. Hann var úr gömlu torfkirkjunni. Á honum var útskorin mynd eftir Einar Einarsson djákna í Grímsey. Snorri Guðvarðsson málarameistari málaði stólinn 2002. Ljósmynd/Kirkjur Íslands

Kristján segir að kirkjugripir séu yfirleitt ekki tryggðir sérstaklega. Einstaka sinnum eru þó dýrir gripir, eins og t.d. pípuorgel, tryggðir. Það er ekki síst ef til þeirra hefur verið safnað. Eins krefjast lánveitendur stundum sérstakra trygginga þegar lánað er til kirkjubyggingar eða orgelsmíði.

Friðlýstar kirkjur eru á þriðja hundrað og allmargar þeirra sóknarkirkjur. Kristján sagði að oft hafi fámennar eða mannlausar sóknir verið sameinaðar öðrum. Þá fær sameinuð sókn í fangið gamla kirkju eða kirkjur tryggðar skyldutryggingu.

Nokkrar bændakirkjur eru í einkaeigu, en þeim hefur fækkað. Þannig var t.d. bændakirkjan Grundarkirkja í Eyjafirði afhent söfnuðinum. Tvær kirkjur eru í eigu ríkisins, Þingvallakirkja og Hóladómkirkja. Skálholtsdómkirkja og allar fasteignir í Skálholti eru eign þjóðkirkjunnar.

Söfnun fyrir kirkju í Grímsey

Kristján hvetur landsmenn til að styðja byggingu nýrrar kirkju í Grímsey í stað þeirrar sem brann með framlagi til sóknarinnar. „Ég mæli með kr. 10.000 á mann því það er nálægt því sóknargjöld einstaklings í eitt ár, eitt sóknarbarn til liðsauka í Miðgarðasókn!“ skrifaði Kristján á Facebook-síðu sinni. Reikningsupplýsingar sóknarinnar eru banki 565-04-250731 og kt. 460269-2539.

Þrír ljósahjálmarvoru í kirkjunni. Sá elsti var keyptur fyrir árið …
Þrír ljósahjálmarvoru í kirkjunni. Sá elsti var keyptur fyrir árið 1884. Ljósmynd/Kirkjur Íslands
Leifar af gömlum ljósahjálmi sem geymdur var á kirkjulofti Miðgarðakirkju.
Leifar af gömlum ljósahjálmi sem geymdur var á kirkjulofti Miðgarðakirkju. Ljósmynd/Kirkjur Íslands
Annar af tveimur stjökum sem Átthagafélag Siglufjarðar gaf kirkjunni á …
Annar af tveimur stjökum sem Átthagafélag Siglufjarðar gaf kirkjunni á 20. öld. Ljósmynd/Kirkjur Íslands
Í kirkjunni var skjöldur með nöfnum sóknarpresta semsátu í eynni …
Í kirkjunni var skjöldur með nöfnum sóknarpresta semsátu í eynni og þjónuðu þar Ljósmynd/Kirkjur Íslands
Söngtafla. Skorin út og máluð af Einari Einarssyni djákna. Hann …
Söngtafla. Skorin út og máluð af Einari Einarssyni djákna. Hann skar út og gaf kirkjunni fleiri gripi. Ljósmynd/Kirkjur Íslands
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert