Skaftárhreppur samþykkir sameiningu

Skaftárhreppur samþykkir tillöguna.
Skaftárhreppur samþykkir tillöguna. Kort/Google

Tillaga um sameiningu Ásahrepps, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps hefur verið samþykkt í Skaftárhreppi.

Samkvæmt kosningu í Ásahreppi var tillagan hinsvegar felld með miklum meirihluta.

Greidd atkvæði í Skaftárhreppi voru 277 en 370 eru á kjörskrá í Skaftárhreppi og var kjörsókn því 75%.

202 greiddu atkvæði með sameiningunni eða 74,8% af greiddum atkvæðum og 68 á móti eða 25,2% af greiddum atkvæðum.

Auð atkvæði voru 4 og ógild atkvæði voru 3

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert