Þrír á gjörgæslu vegna Covid – enginn í öndunarvél

Ljósmynd/Landspítalinn/Þorkell

Alls liggja níu sjúklingar á Landspítala vegna Covid-19, þar af eitt barn. Á bráðalegudeildum spítalans eru sex einstaklingar. Á gjörgæslu er þrír sjúklingar og er enginn þeirra í öndunarvél.

Þetta kemur fram á vef Landspítalans, þar sem birt er yfirlit yfir stöðuna kl. 9 í morgun.

Þar segir einnig, að nú séu 345 sjúklingar, þar af 123 börn, á Covid-göngudeild spítalans. Enginn er metinn rauður en einn gulur.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert