Ekkert lát á landrisi í Öskju

Landrisið kortlagt út frá gögnum Sentinel-1 gervitungslsins, frá 31. júlí …
Landrisið kortlagt út frá gögnum Sentinel-1 gervitungslsins, frá 31. júlí og fram til 23. september. Sjá má skýr merki um aflögun norðvestur af Öskjuvatni og undir því sjálfu. Kortið vann vísindamaðurinn Adriano Nobile fyrir KAUST-háskólann í Sádi-Arabíu.

Land heldur áfram að rísa í eldstöðinni Öskju og hafði í byrjun vikunnar risið um meira en tíu sentimetra frá byrjun ágústmánaðar, þegar þess varð fyrst vart.

Land hafði þá ekki risið í eldstöðinni í fleiri tugi ára.

„Þetta var komið yfir hundrað millimetra upp úr helgi,“ segir Benedikt Gunnar Ófeigsson, sér­fræðing­ur Veður­stof­unn­ar á sviði jarðskorpu­hreyf­inga.

Þessi þróun hefur sést glögg­lega á GPS-stöð sem staðsett er inni í öskj­unni og stendur raunar næstum yfir miðju landrissins. Að auki hafa gervi­tungla­mynd­ir nýst til að staðsetja landrisið betur, en þær eru tekn­ar á nokk­urra daga fresti.

GPS-stöðin er staðsett inni í Öskju.
GPS-stöðin er staðsett inni í Öskju. mbl.is/Sigurður Bogi

Misstu samband við endurvarpann

Gögn hafa þó ekki borist frá GPS-stöðinni frá því um helgina, eftir að endurvarpi Veðurstofunnar missti samband.

Stofnunin hefur því gert út leiðangur til að laga endurvarpann og freista þess að setja út fleiri stöðvar. 

„En veðrið er ekki alveg að hjálpa okkur,“ segir Benedikt. Mannskapurinn er nú á Mývatni en mun reyna að fara inn að Öskju í kvöld þegar vind tekur að lægja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert