Holtavörðuheiði lokað vegna veðurs

Fleiri vegum hafa verið lokað vegna veðurs.
Fleiri vegum hafa verið lokað vegna veðurs. Kort

Holtavörðuheiði hefur verið lokað vegna veðurs. Þessu greinir Vegagerðin frá á vefsíðu sinni en búist er við miklu óveðri í dag á norðanverðu landinu.

Fleiri vegum hafa verið lokað vegna veðurs. Á Vestfjörðum hefur Klettshálsi, Dynjandisheiði, Flateyrarvegi, Súðavíkurhlíð og Steingrímsfjarðarheiði verið lokað.

Á Norðurlandi hefur Þverárfjallsvegi, Ólafsfjarðarmúla og Víkurskarðsvegi verið lokað.

Á Norðausturlandi hefur Mývatns- og Möðrudalsöræfum verið lokað og á Suðvesturlandi hefur Nesjavallaleið verið lokað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert