Óttast að krapastífla hafi myndast í Sauðá

Björgunarsveitarmenn eru að kanna aðstæður.
Björgunarsveitarmenn eru að kanna aðstæður. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglunni á Norðurlandi vestra bárust boð um að Sauðá á Sauðárkróki væri hætt að renna að mestu leyti. Talið er að krapastífla hafi myndast í henni og eru nú liðsmenn björgunarsveita að staðsetja stífluna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Hún biðlar til fólks að vera ekki á ferð við Sauðána og alls ekki í Litla-skógi né leiksvæði Árskóla, einnig að vera ekki á ferð vestan við verknámshús Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki.

Kort/Map.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert