Rýmingu aflétt á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki í dag.
Frá Sauðárkróki í dag. Björn Björnsson

Búið er að aflétta rýmingu og öllum aðgerðum er lokið á Sauðárkróki en haldið var að krapstífla hefði myndast í Sauðá. 

„Við keyrðum upp með allri ánni og það fannst engin krapstífla. Við vorum komin með þá sviðsmynd í huga að það hefði fryst í þessum sprænum sem renna ofan í gilið og þess vegna hætti að leka,“ segir Haf­dís Ein­ars­dótt­ir, formaður Björg­un­ar­sveit­ar Skag­f­irðinga­sveit­ar, í samtali við mbl.is.

Hafdís segir að gamall félagi hennar hafi séð þetta gerast áður.

„Síðan kom gamall félagi til okkar í kvöld og sagðist þekkja þetta frá fyrri tíð að oft myndi fyrsti snjórinn virka sem þerripappír á vatnið og væntanlega gerðist það.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert