Stöðvaður með á annað hundrað oxycontin-töflur

Maðurinn var stöðvaður í flugstöðinni.
Maðurinn var stöðvaður í flugstöðinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Karlmaður var stöðvaður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í gærkvöld við komuna til landsins þar sem í farangri hans fundust á annað hundrað oxycontin-töflur. Tollgæslan fann töflurnar við hefðbundið eftirlit. Lögreglan á Suðurnesjum haldlagði töflurnar og málið er í rannsókn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. 

Þá var annar karlmaður stöðvaður við komuna til landsins um helgina og reyndist vera með meint fíkniefni í buxnaskálm sinni. 

Fór yfir urð og grjót og skemmdist mikið

Í tilkynningunni er farið yfir atvik sem komið hafa upp hjá lögregluembættinu síðustu daga. 

Þar segir að erlendur ferðamaður hafi ekið út af Reykjanesbraut um helgina. Bifreiðin fór yfir urð og grjót og skemmdist mikið. Bifreiðin var fjarlægð af vettvangi með dráttarbifreið. Ökumaðurinn kvaðst hafa verið þreyttur og taldi að hann hefði sofnað undir stýri.

Þá voru höfð afskipti af öðrum ökumanni sem ók Reykjanesbraut á 123 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Þegar betur var að gáð reyndist maðurinn vera með ungt barn í aftursæti bifreiðarinnar sem ekki var í tilskildum öryggisbúnaði. Hann var látinn bíða þar til leigubifreið kom með barnabílstól.

Nokkrir ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur og fáeinir til viðbótar fyrir vímuefnaakstur. Tveir hinna síðarnefndu óku sviptir ökuréttindum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert