Allt að tveir skjálftar á mínútu

Björgunarsveitarmaður á gangi síðasta vor. Í baksýn er fjallið Keilir.
Björgunarsveitarmaður á gangi síðasta vor. Í baksýn er fjallið Keilir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jarðskjálfti af stærðinni 3 varð suðsuðvestur af Keili klukkan 11.14 í morgun. Tilkynningar hafa borist Veðurstofu Íslands um að hans hafi orðið vart á höfuðborgarsvæðinu.

Þetta er stærsti skjálftinn á svæðinu síðan annar skjálfti, 3,7 að stærð, varð norðvestur af Keili rétt fyrir klukkan tvö nótt.

Um 950 skjálftar hafa mælst á svæðinu frá miðnætti.

Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir skjálftavirknina vera að aukast frá því í gær og að skjálftarnir séu að koma á mínútufresti og jafnvel tveir á mínútu.

Vísindaráð almannavarna fundar klukkan 13 í dag í gegnum fjarfundarbúnað. Þar verður meðal ný gervihnattamynd af svæðinu skoðuð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert